BBQ kjötbollur



⌑ Samstarf ⌑
hugmyndir af smáréttum

Þessar dásamlegu bollur eru fullkomnar á smáréttahlaðborðið, í útileguna eða sem máltíð með góðu meðlæti. Það er einfalt að búa þær til og ég mæli með að þið prófið!

Mmm….

kjötbollur

BBQ kjötbollur uppskrift

Um 30 stykki

  • 600 g nautahakk
  • ½ laukur
  • 20 g Panko rasp
  • 30 g parmesan ostur
  • 1 egg
  • 3 hvítlauksgeirar
  • 2 msk. söxuð steinselja
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • Salt + pipar
  • 6 msk. Heinz bbq sósa að eigin vali
  • Graslaukur (til skrauts)
  • PAM matarolíusprey
  1. Hitið ofninn í 175°C.
  2. Saxið laukinn smátt, rífið parmesan ostinn fínt niður, rífið/pressið hvítlauksrifin og blandið öllu saman í skál  nema bbq sósu og graslauk.
  3. Kryddið vel með salti og pipar og ef þið eigið önnur uppáhalds krydd má bæta þeim við hér.
  4. Rúllið síðan í litlar bollur (um matskeið fyrir hverja) og raðið á bökunarpappír í ofnskúffu, spreyið aðeins með PAM.
  5. Bakið í 10 mínútur, snúið bollunum og bakið aftur í 10 mínútur.
  6. Takið þær þá úr ofninum, færið yfir í eldfast mót eða nýjan bökunarpappír (til að losna við umfram fitu), veltið upp úr bbq sósunni og bakið aftur í um 5 mínútur.
  7. Berið fram með því að strá söxuðum graslauk yfir og hægt er að borða bollurnar bæði heitar og kaldar og eru þær því tilvalinn réttur til að útbúa með fyrirvara og hafa á smáréttahlaðborði.
smáréttir

Eeeeelska þessa BBQ sósu mest af öllum!

bbq kjötbollur

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun