Makkarónur og ostur



⌑ Samstarf ⌑
makkarónur og ostur

„Mac & Cheese“ eða makkarónur og ostur er einfaldur réttur og elskar yngsta dóttir mín þennan mat! Ég myndi segja það taki í mesta lagi 20 mínútur að útbúa hann með frágangi og bera á borð!

mac and cheese

Makkarónur og ostur

Fyrir um 4 manns

  • 300 g makkarónupasta
  • 50 g smjör
  • 20 g hveiti
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. hvítlauksduft
  • 250 ml nýmjólk
  • 50 g sýrður rjómi
  • 200 g Cheddar ostur frá Gott í matinn
  1. Sjóðið pasta samkvæmt leiðbeiningum á pakka.
  2. Bræðið smjörið við meðalhita og blandið hveiti, salti og hvítlauksdufti saman í litla skál.
  3. Þegar smjörið er bráðið má píska hveitiblöndunni saman við og bæta síðan mjólkinni útí í nokkrum skömmtum. Hækkið örlítið hitann og pískið vel þar til kekkjalaus blanda hefur myndast.
  4. Bætið þá sýrða rjómanum saman við og pískið aftur þar til kekkjalaust og pískið við meðalhita þar til blandan þykknar örlítið (3-5 mínútur).
  5. Takið þá af hellunni og bætið ostinum saman við, pískið þar til hann er bráðinn.
  6. Bætið nú pastanu saman við og blandið saman með sleif/sleikju og njótið strax.
barnvænn kvöldmatur

Mæli með að þið prófið!

kvöldmatur hugmynd
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun