Spagettí og kjötbollur



⌑ Samstarf ⌑
spagettí með kjötbollum

Hér kemur ein klassísk og góð! Það er í raun mjög einfalt að útbúa hakkbollur og hægt að setja ýmislegt gómsætt í blönduna. Piparosturinn gerir þær bragðmeiri og mér finnst einnig mikilvægt að krydda blönduna vel með góðum kryddum.

Mmm…

hakkbollur og spaghetti

Spagettí og kjötbollur

Fyrir 4-6 manns

  • 500 g nautahakk
  • 1/3 laukur (saxaður)
  • 1 piparostur (rifinn)
  • 3 hvítlauksrif (rifin)
  • 2 tsk. oregano krydd
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. hvítlauksduft
  • ½ tsk. pipar
  • 1 msk. fljótandi nautakraftur
  • 1 egg
  • 50 g Ritzkex (mulið)
  • 2 x Filippo Berio pastasósa með basil
  • 150 ml rjómi
  • Parmesan ostur
  • 1 pk. Dececco spaghetti
  • Filippo Berio ólífuolía
  1. Setjið hakk, lauk, piparost, hvítlauk, egg, ritzkex, kraft og krydd í hrærivélarskálina og hnoðið með K-inu (eða í höndunum).
  2. Mótið litlar bollur (um 1 msk) og steikið upp úr ólífuolíu þar til allar hliðar brúnast.
  3. Hellið þá pastasósunum og rjómanum yfir og leyfið að malla á meðan þið sjóðið spaghetti.
  4. Njótið með parmesanosti.
spagettí og hakkbollur

Þessar pastasósur frá Filippo Berio eru einstaklega ljúffengar!

hakkbollur með piparosti

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun