Ég sá þessa hugmynd á Instagram og fannst hún of girnilega til að prófa ekki! Sé aldeilis ekki eftir því þar sem þetta var svo fjótlegt og undur ljúffengt, þið verðið að prófa þetta!
Mmm….

Burrata kósýheit
- 2 x stór burrata kúla
- 1 box piccolo tómatar
- 1 msk. Filippo Berio jómfrúarolía
- 1 msk. söxuð basilíka
- ½ tsk. salt
- Nokkrar teskeiðar Filippo Berio grænt pestó
- 3 hráskinkusneiðar
- 1 lúka ristaðar furuhnetur
- Baguette brauð
- Byrjið á því að setja hráskinkusneiðarnar á bökunarpappír í 180°C heitan ofn í 10-15 mínútur eða þar til þær verða stökkar.
- Komið burrata kúlunum fyrir á bretti/disk og dreifið úr þeim.
- Skerið niður tómatana og blandið saman í skál með jómfrúarolíu, basilíku og salti, dreifið yfir burrata kúlurnar.
- Setjið næst ristaðar furuhnetur yfir og skerið stökka skinkuna niður og dreifið yfir að lokum.
- Njótið með baguette brauði eða kexi.

Burrata, tómatar og pestó eru heilög þrenna!

Ekki skemmir að hafa hvítvín með!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































