Hér kemur fullkominn forréttur eða smáréttur fyrir áramótin! Það er hátíðlegt að raða þessu svona upp og síðan getur hver og einn skammtað sér að vild á sína brauðsneið.
Namm, einum of gott!

Brie salathringur með baguette
- 1 x baguette brauð
- 100 g pekanhnetur
- 3 msk. sykur
- Veislu salat og klettasalat
- Spírur
- ½ granatepli
- 100 g hindber
- 1 x mandarína
- 2 x brie ostur að eigin vali
- Sinnepsgljái (sjá uppskrift að neðan)
- Balsamik gljái
- Sneiðið brauðið niður og ristið.
- Bræðið sykur á pönnu og hrærið pekanhnetunum saman við þar til þær hjúpast. Leggið á bökunarpappír og leyfið að kólna, skerið síðan niður til að strá yfir salatið.
- Setjið litla skál í miðjuna á um 30 cm disk/fati og raðið í kringum hana báðum tegundum af salti, spírum, granatepli, hindberjum og mandarínusneiðum.
- Skerið brie ostinn niður í munnstóra bita og dreifið yfir salatið.
- Fjarlægið skálina og toppið með sinnepsgljáa, balsamik gljáa og sykruðum hnetum.
- Njótið með baguette brauði.
Sinnepsgljái uppskrift
- 3 msk. ólífuolía
- 1 msk. Dijon Honey Mustard sinnep
- 2 msk. hunang
- 1 msk. balsamik edik
- Pískið allt saman og setjið yfir salatið.

Þetta sinnep passar mjög vel í svona dressingar!



































