Ég var ekki enn búin að prófa „viral trendið“ með japönsku ostakökuna svo ég ákvað að hoppa á vagninn og prófa íslensku útgáfuna með uppáhalds Noir kexinu mínu!
Útkoman var stórgóð og þetta skemmtileg tilbreyting frá klassískri ostaköku og klárlega mun einfaldara!

Súkkulaði japönsk ostakaka
Uppskrift dugar í um 3 glös/skálar
- 500 g grísk jógúrt með vanillu
- 2 msk. bökunarkakó
- Frón Noir kex x 15 kexkökur
- Smá rifið dökkt súkkulaði
- Pískið saman gríska jógúrt og kakó, skiptið niður í glös.
- Stingið um 5 kexkökum í hvert glas, plastið og kælið yfir nótt (í nokkra klukkutíma).
- Raspið smá dökkt súkkulaði yfir og njótið.

Noir kexið frá Frón hefur verið eitt af mínum uppáhalds kexum síðan ég var barn!


































