Við fjölskyldan elskum bakaðar baunir! Þessi tilraun var því einstaklega vinsæl á þessu heimili og heppnaðist afar vel. Virkilega skemmtileg tilbreyting fyrir brönsinn og ég mæli með að þið prófið um helgina!
Namm!

Bröns panna með pylsum og bökuðum baunum
Fyrir 3-4 manns
- ½ laukur
- 4 x pylsur
- 1 x Heinz bakaðar baunir (415 g)
- 3 egg
- Rifinn ostur
- Ristað brauð
- Salt + pipar
- Smjör til steikingar
- Hitið ofninn í 200°C.
- Skerið laukinn í strimla og steikið upp úr smjöri ásamt niðurskornum pylsunum, saltið og piprið.
- Hellið baunadósinni saman við og blandið saman.
- Ef þið eruð með ofnhelda pönnu megið þið gera 3 x holu í baunablönduna og brjóta eitt egg í hverja holu. Ef pannan má ekki fara í ofninn hellið þið baunablöndunni í eldfast mót og brjótið eggin í holur þar.
- Stráið rifnum osti yfir allt saman.
- Bakið í ofninum í um 10 mínútur, berið síðan fram með ristuðu brauði.

Þessar klassísku eru alltaf bestar!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































