Sylvanian afmælisveisla



Afmæli hugmyndir

Yngsta prinsessan á heimilinu varð 9 ára á sunnudaginn! Hún er enn til í alla liti regnbogans í lífinu, vildi Sylvanian afmæli og Jellycat bangsar voru ofarlega á óskalistanum. Þessu tek ég fagnandi á meðan það endist! Hún er nú einu sinni síðasta litla barnið mitt og þegar þetta tímabil klárast í lífinu þá kemur það ekkert aftur. Mér finnast börn stundum vera að fullorðnast alltof fljótt svo við skulum halda í barnið í þeim eins lengi og hægt er því æskan er svo saklaus og dásamleg!

Eitt stutt og gott myndband af afmælisborðinu hennar.

Afmæliskaka

Hér kemur því færsla og FULLT af myndum sem þið vonandi hafið gagn og gaman af!

Barnaafmæli hugmyndir

Afmæliskaka

Byrjum kannski á afmæliskökunni sjálfri. Daman var búin að panta Sylvanian köku og ég stóð alveg á gati með það. Ekkert slíkt partýdót til svo ég fór á BOOZT og fann þennan krúttlega loftbelg sem ég pantaði og ákvað að hafa sem kökutopp. Síðan notuðum við Sylvanian fígúrur til að stinga í kökuna hér og þar og skreyttum einnig borðið með fleiri fígúrum og Sylvanian ævintýrakastala sem hún fékk í afmælisgjöf um morguninn.

Kakan er tveggja hæða Betty Crocker súkkulaðikaka með súkkulaði smjörkremi inn á milli (3 botnar á hvorri hæð, ég notaði 3 kökumix í heildina og gerði nokkrar bollakökur úr því líka). Stoðir eru á milli hæða og pappaspjald undir efri kökunni. Síðan finnst mér best að nota Betty Vanilla Frosting og setja um 100 g af flórsykri í hverja dós og lita kremið, það gefur bjarta og fallega liti. Ég þakti með gulum og bleikum lit og sprautaði síðan mynstri með ýmiss konar stútum (laufastútur fyrir blúnduna á miðjuna og mismunandi stjörnustútar í annað mynstur).

Hin bláa með fallega kökuskiltinu frá Hlutprent var síðan gerð aukalega, meira til skrauts á borðinu en annað, tíhí!

Kökupinnar í afmæli

Kökupinnana gerði ég um daginn, setti í frystinn og tók úr frysti deginum áður. Best er að affrysta þá í ísskáp til að koma í veg fyrir að þeir „svitni“.

Bollakökurnar eru Betty Devils Food Cake mix og ég notaði síðan afganginn af kreminu sem ég var að skreyta kökurnar með til að skreyta þær. Notaði stóran laufastút til að gera mynstrið og setti eina sykurperlu í miðjuna.

Afmæli

Ég var síðan búin að sanka að mér alls kyns pastel litluðu nammi héðan og þaðan sem ég skreytti borðið með og tryggði það að öll börn færu vel sykruð heim úr þessu afmæli, afsakið það!

Barnaafmæli snarl

Pappadiska, servíettur, rör og pappabox keypti ég í Partýbúðinni ásamt blöðrunum og fleiru sniðugu.

Hvað á að hafa í afmæli?

Einfaldar hugmyndir eins og að dýfa ískexi í hjúpsúkkulaði reynast vel!

Hugmyndir fyrir barnaafmæli

Nammi upp á grillprik voru mjög vinsæl! Tyggjókúlur héldu prikunum uppi í glasinu og síðan setti ég nammi í litlar krukkur með slaufu og smá candyfloss á toppinn.

Afmæli

Þetta var það sem ég setti á barnaborðið og síðan bakaði ég skinkuhorn og hitaði mini pizzur fyrir börnin líka. Það koma hins vegar fleiri fullorðnir orðið í fjölskyldu- og vinaafmæli til okkar en börn svo eitthvað þarf að huga að veitingum fyrir þann hóp.

veisluhugmyndir

Veitingar í afmæli

Að þessu sinni pantaði ég nánast allar veitingar frá Kökulist bakarí í Firði Hafnarfirði. Ég var í stuði fyrir „gamaldags“ veitingar og við höfum áður keypt undursamlega marsipantertu hjá þeim svo ég ákvað að létta mér lífið og fá smá aðstoð þarna megin!

marsimanterta

Þessi hérna marsipanterta frá þeim er núggat og skógarberja og almáttugur hún er svo góð!

brauðterta

Við vorum með tvær gerðir af brauðtertum, annars vegar rækju og hins vegar skinku og voru báðar virkilega góðar!

marengsterta

Bounty-marengstertan frá þeim var síðan svo falleg og góð!

Afmæli

Tapas snitturnar voru með laxi, rækju og brie osti og voru undur ljúffengar. Að auki fengum við líka hjá þeim gulrótarkökubita og kleinur sem voru algjör snilld.

Afmæli

Ég gerði síðan heitt rúllubrauð, Hemmi útbjó Hagkaups-ostasalatið fræga, hrískökur eru einnig skyldu-uppskrift í afmæli (er að fatta ég á ekki link á klassískar slíkar svo nú þarf ég að bæta úr því) og svo gleymdust reyndar tveir heitir kjúklingaréttir úti, hahaha! Það kom sér reyndar bara vel því afmælið byrjaði kl:15:00 og það voru bæði fótbolta- og körfuboltaleikir í gangi þennan sunnudag svo stór hópur vina okkar var hér enn á kvöldmatartíma. Kjúklingaréttunum var því skellt í ofninn og allir voru í kvöldmat hér og fóru í „round 2“ af veitingum.

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun