Marengsterta sumarsins



⌑ Samstarf ⌑
marengskaka

Púðursykurmarengs eins og pabbi gerir hann er sá allra besti. Ég er oftast að vinna með að baka marengs við lægri hita í lengri tíma því þá verður hann stökkari og heldur sér betur. Pabbi bakar hins vegar við aðeins hærri hita í skemmri tíma og það kemur ákveðin karamellu-klísturs áferð inn í marengsinn sem er svoooo góð. Bæði er klárlega gott en gaman að gera mismunandi úrfærslur og ég var í stuði fyrir svona köku þetta skiptið svo hér kemur aðferðin hans pabba en með nýstárlegri fyllingu.

Namm!

púðursykurmarengs

Marengsterta sumarsins

Marengsbotnar

  • 6 eggjahvítur
  • 320 g púðursykur
  1. Hitið ofninn í 170°C.
  2. Setjið bökunarpappír á tvær ofnskúffur og teiknið um 25 cm hring á hvora.
  3. Þeytið saman eggjahvítur og púðursykur þar til topparnir halda sér.
  4. Skiptið á milli ofnplatanna og dreifið úr, skiljið eftir um 2 cm af hringjunum sem þið teiknuðu þar sem marengsinn lekur aðeins út við bakstur.
  5. Bakið í 45 mínútur og leyfið marengsinum að kólna niður með ofninum í að minnsta kosti klukkustund.

Fylling

  • 600 ml þeyttur rjómi
  • 500 g jarðarber
  • 250 g Bíókropp með pipar-brjóstsykri
  • 50 g Síríus suðusúkkulaði
  1. Takið um 1/3 af rjómanum til hliðar til að setja ofan á síðast.
  2. Stappið um helming jarðarberjanna og setjið saman við stærri hlutann af rjómanum (2/3), skerið restina af jarðarberjunum í bita til að skreyta kökuna með.
  3. Hellið 1 poka af Bíókroppi saman við rjómann með stöppuðu jarðarberjunum, blandið öllu vel saman og setjið á milli botnanna.
  4. Setjið restina af rjómanum á toppinn, smyrjið aðeins út (ekki alveg út að köntum samt) og skreytið með meira Bíókroppi og niðurskornum jarðarberjum.
  5. Bræðið að lokum suðusúkkulaðið og dreifið úr yfir alla kökuna.  
marengsterta

Ef þið hafið ekki smakkað þessa útgáfu af Bíókroppinu þá eruð þið að missa af!

marengsterta
Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun