Súkkulaði „Turtle“ kökur



⌑ Samstarf ⌑
jólabakstur hugmyndir

Það má svo sannarlega bæði baka og borða yfir sig af smákökum í desember! Þessa uppskrift sá ég á síðu sem heitir Pixelated Crumb fyrir nokkrum árum og var að gera endurbætta útgáfu af henni ásamt myndbandi! Ég aðlagaði hana aðeins að því sem ég var að gera en breytti samt ekki miklu. „Turtle Cookies“ eru kökur sem innihalda karamellu og pekanhnetur, síðan eru útfærslurnar ýmiss konar!

Mmmm….

smákökur með karamellu

„Turtle“ kökur uppskrift

  • 180 g hveiti
  • 30 g bökunarkakó
  • ½ tsk. salt
  • 120 g smjör við stofuhita
  • 190 g sykur
  • 1 eggjarauða
  • 2 eggjahvítur
  • 2 msk. nýmjólk
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 150 g saxaðar pekanhnetur
  • 150 g Werther’s Salted Caramel Cream karamellur
  • 3 msk. rjómi
  1. Blandið hveiti, bökunarkakó og salti saman í skál og leggið til hliðar.
  2. Þeytið smjör og sykur þar til létt og ljóst.
  3. Bætið þá eggjarauðunni saman við ásamt mjólk og vanilludropum.
  4. Að lokum fer hveitiblandan saman við og deiginu næst þjappað í kúlu, plastað og kælt í að minnsta kosti klukkustund.
  5. Hitið ofninn í 175°C og takið til tvær bökunarplötur með bökunarpappír.
  6. Pískið eggjahvítur í eina skál og setjið smátt saxaðar pekanhnetur í aðra.
  7. Vigtið um 30 g af deigi fyrir hverja kúlu, rúllið henni upp, setjið næst í eggjahvíturnar og rúllið síðan upp úr pekanhnetum.
  8. Leggið á bökunarplötu og pressið ofan í miðja kúlu með mæliskeið til að gera smá holu fyrir karamelluna.
  9. Bakið í um 20-25 mínútur eða þar til kökurnar fara aðeins að dökkna.
  10. Útbúið karamelluna á meðan með því að bræða saman karamellur og rjóma.
  11. Takið kökurnar út, pressið aftur laust með skeiðinni í holuna og hellið karamellunni þar ofan í.
  12. Leyfið að kólna niður, karamellan helst þó alveg seig svo ekki stafla þessum kökum upp því þá gæti karamellan klístrast.
góðar karamellur

Þessar smákökur eru klárlega með þeim betri sem ég hef gert og eru löngu búnar á þessu heimili!

smákökur uppskrift

Þessi uppskrift er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun