Mexíkósostur er uppáhald margra á mínu heimili og því fannst mér kjörið að taka klassískar ritz-kex hakkbollur upp á næsta stig með því að bæta rifnum slíkum í blönduna. Þetta er svo gott og rjómalöguð sósan fullkomnar uppskriftina, mæli með að þið prófið!

Mexíkóbollur í rjómasósu
Fyrir um 4 manns
Hakkbollur með ritz kexi og mexíkóosti
- 500 g nautahakk
- 1/3 Mexíkó kryddostur frá MS gott í matinn
- 1/3 laukur
- 50 g Ritz kex
- 1 egg
- 2 hvítlauksrif
- 1 tsk. salt
- 1 tsk. laukduft
- ½ tsk. pipar
- Ólífuolía
- Saxið laukinn smátt, myljið Ritz kex smátt niður, rífið hvítlauksrifin og mexíkó ostinn niður.
- Blandið síðan öllu saman í hrærivélinni með K-inu eða hnoðið saman í höndunum.
- Mótið litlar bollur, ég notaði litla ísskeið en gott er að miða við um 1 msk. af hakkblöndu fyrir hverja bollu.
- Steikið síðan bollurnar í tveimur skömmtum upp úr ólífuolíu svo þær brúnist vel á öllum hliðum, færið yfir á disk.
- Skolið næst pönnuna og útbúið sósuna (sjá uppskrift hér að neðan).
- Leyfið bollunum síðan að malla í sósunni við lágan í hita í nokkrar mínútur áður en þið berið fram með hrísgrjónum eða öðru sem hugurinn girnist.
Rjómalöguð sósa
- 2/3 Mexíkó kryddostur frá MS gott í matinn
- 500 ml rjómi frá MS gott í matinn
- 2 hvítlauksrif
- 1 msk. tómatpúrra
- 1 msk. nautakraftur
- Salt og pipar
- Ólífuolía
- Rífið hvítlauksrifin og steikið þau upp úr ólífuolíu stutta stund.
- Bætið helmingnum af rjómanum saman við og rífið mexíkó ostinn útí, hrærið vel þar til osturinn er bráðinn, hrærið reglulega allan tímann.
- Þegar osturinn er bráðinn má setja restina af rjómanum,tómatpúrru og kraft og hræra vel, smakkið síðan til með salti og pipar áður en þið bætið bollunum aftur á pönnuna.

Þessi réttur var svooooo góður að hann kláraðist upp til agna, mun gera eina og hálfa uppskrift fyrir okkur 5 næst!



































