Síðan ég var lítil hef ég elskað smákökur með heslihnetum. Amma Guðrún gerði alltaf súkkulaðistangir og þessi útfærsla hér er nokkuð lík þeim myndi ég segja nema með meira lúxus ívafi og mýkri í sér en stangirnar.
Ég elska heslihnetur og Ferrero Rocher kúlur svo þessi samsetning gæti ekki átt betur við mig!

Heslihnetudraumur
Uppskrift gefur 18 kökur
- 120 g smjör við stofuhita
- 100 g sykur
- 50 g púðursykur
- 1 egg
- 2 tsk. vanilludropar
- 1 msk. súkkulaði- og heslihnetusmjör (t.d Nutella)
- 70 g Til hamingju heilar heslihnetur
- 20 g bökunarkakó
- ½ tsk. lyftiduft
- ½ tsk. matarsódi
- ½ tsk. salt
- 150 g hveiti
- 150 g súkkulaðidropar (dökkir)
- 18 Ferrero Rocher súkkulaðikúlur
- 60 g dökkt súkkulaði (brætt til skrauts)
- Hitið ofninn í 175°C.
- Þeytið smjör og báðar tegundir af sykri þar til létt og ljóst, skafið niður á milli.
- Bætið þá egginu, vanilludropum og súkkulaði- og hnetusmjöri saman við og þeytið áfram, skafið niður á milli.
- Setjið heslihneturnar í blandara og duftið þær niður eins og hægt er, bætið saman við smjörblönduna ásamt bökunarkakói, lyftidufti, matarsóda og salti, hrærið vel saman.
- Vefjið næst hveitinu saman við með sleikju og því næst súkkulaðidropunum.
- Mótið kúlur úr um 2.msk af deigi og raðið á bökunarplötu með smá bili á milli, bakið í 12-14 mínútur.
- Takið glas/hring um leið og kökurnar koma úr ofninum og jafnið lögunina á þeim og stingið næst einni Ferrero Rocher súkkulaðikúlu í miðjuna.
- Leyfið kökunum nú að kólna niður/ná stofuhita áður en þeirra er notið.



































