Brauðtertur eru algjör nostalgía og ég skil ekki af hverju ég geri ekki slíkar oftar! Þegar maður rúllar upp brauðtertubrauði með salati verður hún lítil og viðráðanleg og auðvelt að skera í sneiðar svo ég ákvað að gera slíka útfærslu að þessu sinni.
Namm!

Skinku- og aspas brauðterta
Inn í brauðtertuna
- 1 x hvítt rúllutertubrauð
- 150 g Heinz majónes
- 70 g sýrður rjómi
- 200 g skinka
- 2 tsk. hunangs-dijon sinnep
- 5 harðsoðin egg
- 200 g niðursoðinn aspas
- Aromat, salt, pipar
- Pískið majónes og sýrðan rjóma saman, kryddið eftir smekk.
- Skerið eggin saman við í litla bita, stappið aspasinn og skerið skinkuna smátt niður, blandið saman við majónesblönduna.
- Smyrjið inn í rúllutertubrauðið og rúllið upp, skreytið.
Til skreytingar
- 100 g Heinz majónes
- 70 g sýrður rjómi
- Um 200 g silkiskorin skinka
- Sprettur
- Mini agúrka
- Smá graslaukur
- Nokkur blæjuber
- Pískið majónes og sýrðan rjóma saman, smyrjið jafnt utan á alla rúllutertuna.
- Raðið silkiskorinni skinku yfir toppinn og aðeins niður á hliðarnar.
- Fyllið upp í hliðar og enda með sprettum (mætti líka vera klettasalat, spínat eða álíka)
- Skreytið með graslauk, blæjuberjum og skerið agúrku ílangt með ostaskera til að raða ofan á.

Mæli með að þið útbúið þessa dásemd fyrir næstu veislu eða með helgarkaffinu!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































