Skinkusalat með ferskjum



⌑ Samstarf ⌑
skinkusalat

Um daginn gerði ég undursamlega brauðtertu með skinkusalati og fékk ábendingu frá körfuboltamömmu um að það væri gott að setja ferskjur úr dós í skinkusalat. Ég varð auðvitað að prófa þetta og hér kemur þessi snilld fyrir ykkur að njóta! Takk fyrir ábendinguna Fanney!

Mmm, súpereinfalt og kláraðist upp til agna!

eggja og skinkusalat

Skinkusalat með ferskjum

  • 8 egg (harðsoðin)
  • 150 g skinka
  • 1 ferskja úr dós (2 x helmingur)
  • 100 g Heinz majónes
  • 100 g sýrður rjómi
  • Aromat, salt og pipar
  1. Pískið saman majónes og sýrðan rjóma, kryddið eftir smekk.
  2. Skerið egg og skinku niður og setjið saman við majónesblönduna.
  3. Leyfið safanum að leka af ferskjunum og skerið síðan smátt niður og bætið saman við.
  4. Blandið öllu saman og kryddið frekar ef ykkur finnst þurfa.
  5. Njótið með Ritz kexi!
salat ofan á kex

Ég skil ekki af hverju ég geri ekki oftar svona heimatilbúin salöt! Það er svo einfalt og þau eru svoooo góð!

skinkusalat með ferskjum

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!

Deila uppskriftinni

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Flokkar

0
0
Karfan þín
Karfan er tómNetverslun