Það er fátt betra en heit súkkulaðikaka með ís! Hér einfaldar kökumixið okkur lífið og útkoman er dásamleg, blaut súkkulaðikaka með undursamlegum rjómaís, fullkomin tvenna!

Ég hef alla tíð elskað að leika mér með kökumix og finnst mér frábært að geta stytt mér leið í bakstinum með slíkum hætti. Þegar við bjuggum í Bandaríkjunum voru heilu veggirnir með alls kyns kökumixum en alltaf endaði ég á Betty vinkonu minni því hún er einfaldlega best.

Heit súkkulaðikaka með ís
- 2 x Betty Crocker Chocolate Chip mix
- 2 msk. bökunarkakó
- 150 g smjör (brætt)
- 30 ml vatn
- 60 g dökkt súkkulaði (gróft saxað)
- Emmess ís með vanillubragði
- Þykk karamellusósa
- Hitið ofninn í 160°C.
- Smyrjið eldfast mót/pönnu að innan með vel af smjöri.
- Setjið Betty Crocker duftið í skál ásamt bökunarkakó, bræddu smjöri og vatni.
- Hrærið/pískið saman og setjið síðan dökka súkkulaðið saman við í lokin.
- Hellið í formið og bakið í 16-20 mínútur (eftir því hversu blauta þið viljið hafa kökuna).
- Leyfið henni aðeins að kólna og berið síðan fram volga með ís og karamellusósu. Einnig er gott að setja smá karamellukurl á toppinn en þess þarf þó ekki.

Hér tók ég smákökudeig og lék mér aðeins með það og breytti yfir í volga súkkulaðiköku.

Rjómaísinn frá Emmess er með extra góðu vanillubragði og rjómakeimurinn og mýktin er dásamleg!


































