Ég ákvað að prófa að útbúa smurbrauð svipað og hægt er að fá á Jómfrúnni og setja tilbúinn steiktan fisk á brauðsneiðina í stað rauðsprettu. Þetta kom virkilega vel út og allir sem smökkuðu voru á einu máli um það!
Það er auðvelt að undirbúa allt annað á meðan fiskurinn er í ofninum og þá er ekkert eftir nema að raða þessu fallega saman.

Mmm….

Smørrebrød með steiktum fiski, rækjum, laxi og remúlaði
4 stykki
- 4 x einingar af fiski frá Grími kokk
- 4 rúgbrauðssneiðar
- Remúlaði
- 4 sneiðar reyktur lax
- 12 rækjur
- 4 sítrónusneiðar
- Salatblöð
- Hvítur niðursoðinn aspas
- Kavíar (svartur)
- Dill
- Smjör
- Hitið ofninn í 185°C.
- Setjið fiskinn í ofninn í um 25 mínútur og undirbúið annað á meðan.
- Smyrjið rúgbrauð með smjöri og leggið salatblað yfir.
- Næst fer fiskurinn ofan á sneiðina og síðan toppið þið með remúlaði, laxarós, kavíar, rækjum, sítrónusneið, smá aspas og dilli.

Steikti fiskurinn frá Grími kokk er frábær lausn til að einfalda eldamennskuna, hvort sem þið ætlið að skella í lúxus smurbrauð eða sjóða kartöflur með!



































