Það er frábær lausn fyrir veisluna að bjóða upp á einstaklings ostabox og síðan er bara svo fallegt að raða þeim upp á veisluborðið. Það má setja hvað sem hugurinn girnist í boxin en Hávarður krydd er ostur sem passar með öllu svo ég valdi að hafa hann hér í aðalhlutverki.

Ostabox
Magn af osti dugar í 10-12 box
- 1 stk. Óðals Hávarður krydd
- 1 stk. Dala Auður
- Jarðarber (c.a 2 í hvert box)
- Kexstangir
- Salami (1/2 sneið í hvert box)
- Prezel súkkulaði
- Súkkulaðihjúpaðar hnetur/ber
- Vínber
- Rifsber
- Brómber
- Pistasíuhnetur
- Annað kex
- Rósmarín og/eða blóm
- Ostapinnar
- Skerið Hávarð krydd niður í litla teninga og raðið á ostapinna ásamt vínberjum, salami eða öðru sem hugurinn girnist.
- Skerið Auði í sneiðar og raðið síðan öllu saman í boxið eins og ykkur þykir fallegast.

Hávarður krydd er einn af mínum uppáhalds!



































