Hér koma undursamlegar tartalettur sem eru fullkomnar þegar þið eigið afgang af hamborgarhrygg eftir hátíðirnar! Ef þið eigið ekki kjöt er hægt að kaupa sneiðar og nota þær í þennan rétt!
Namm!

Tartalettur með hamborgarhrygg
20 stykki
- 20 x tartalettur
- 1 lítill haus brokkoli
- 150 g sveppir
- ½ blaðlaukur
- 400 g hamborgarhryggur
- 1 piparostur
- 250 ml rjómi
- 4 msk. Heinz majónes
- Maizena mjöl
- Rifinn ostur
- Salt og pipar
- Smjör til steikingar
- Skerið grænmetið smátt niður og hitið ofninn í 180°C.
- Steikið brokkoli upp úr vel af smjöri ásamt sveppum og blaðlauk.
- Kryddið með salti og pipar eftir smekk og þegar grænmetið mýkist má hella rjóma og majónesi á pönnuna ásamt rifnum piparosti.
- Blandið öllu saman og þykkið blönduna aðeins með Maizena mjöli.
- Skiptið niður í tartaletturnar, toppið með rifnum osti og bakið í um 15 mínútur í ofninum.

Njótið!

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































