Það er alltaf gaman að prófa nýjar ídýfur og ekki skemmir fyrir ef þær eru einfaldar og ljúffengar eins og þessi hér!
Góð tilbreyting frá klassískri ídýfu og þetta litla TUC kex er æði!

Grænmetis ídýfa
- 200 g Philadelphia rjómaostur með graslauk & hvítlauk
- 150 g sýrður rjómi
- 1 meðalstór gulrót (rifin smátt)
- ½ rauðlaukur (saxaður smátt)
- ½ rauð paprika (söxuð smátt)
- Mini TUC kex
- Vorlaukur til skrauts
- Þeytið saman rjómaost og sýrðan rjóma í hrærivél þar til slétt og fín áferð hefur myndast.
- Bætið rifinni gulrót ásamt söxuðum rauðlauk og papriku saman við og blandið varlega saman við með sleikju, toppið með smá vorlauk.
- Gott er að kæla ídýfuna í um klukkustund áður en hennar er notið með mini TUC kexi.

Þetta litla kex passar fullkomlega með ídýfunni!

Ekki skemmir að hafa smá hvítvín með þessu.

Þessi færsla er unnin í samstarfi við Gerum daginn girnilegan!


































